Veiðileyfi eru seld í veitingarhúsinu við Hraunfossa (opið frá 11 – 15 mánudaga til fimmtudaga, 11-17 föstudaga til sunnudaga) eða í gengum netið með því að senda póst á netfangið veidi@arnarvatnsheidi.is 

Allar upplýsingar um veiði á Arnavatnsheiði sunnanverðri veita Snorri H. Jóhannesson veiðivörður í síma 892 5052 eða Kristrún Snorradóttir með tölvupósti á netfangið veidi@arnarvatnsheidi.is

Athugið að til að komast á sunnanverða Arnarvatnsheiði þarf annað hvort að fara yfir vað á Norðlingafljóti  sem einungis er fært jeppum eða yfir brú á sem var tekin í notkun árið 2019. Ef farið er yfir brúnna er torfært að Úlfsvatni og því svæði þannig við viljum benda mönnum á að vera á góðum jeppum ef þeir ætla að fara þá leið. Það er auðveldara að komast áfram norður og í vötn eins og Núpatjörn.

Gangið vel um, sýnið náttúrunni virðingu og njótið verunnar á heiðinni.

Smelltu HÉR til að skoða kort af vesturhluta veiðisvæðisins pdf-formi og smelltu HÉR til að sjá kort af austurhluta veiðisvæðisins á pdf-formi. Á þessum kortum má sjá vötnin, árnar, læki, mörk veiðisvæðisins, slóða, hvar veðihús og skálar eru staðsett, reiðleiðir og girðingarstæði.

Ef þið hafið skemmtilegar minningar eða myndir úr veiðiferðum á Arnarvatnsheiði sem þið viljið deila með öðrum áhugamönnum um stangveiði er um að gera að senda þær á netfangið veidi@arnarvatnsheidi.is og við munum, birta þær hérna á síðunni.