Veiðifélag Arnarvatnsheiðar leigir út tvö veiðihús við Úlfsvatn og eitt nýtt hús milli Arnarvatns litla og neðra Arfavatnsins.
Um helgar kosta stærri húsin (8 manna) 20.000kr. pr. sólarhring. Minna húsið (4 manna ) kostar 12.000kr. pr. sólarhring um helgar.
Aðfaranætur mánudaga til aðfaranætur föstudaga (sem sagt í miðri viku) kosta stærri húsin 17.000 kr. en hið minna 9.000 kr.
Húsin eiga að vera tilbúin fyrir næsta gest kl. 17 á brottfarardegi og þá fara skipti fram að öllu jöfnu en kjósi menn að fara fyrr getur sá næsti að sjálfsögðu sest fyrr að.
Lyklar verða í söluskálanum Hálsakoti við Hraunfossa. Millifæri menn
veiðileyfi og húsaleigu verða
þeir að sýna kvittun til að fá lyklana afhenta.
Verð á veiðileyfum sumarið 2010 er 4.500 kr. stöngin á dag. Veiðileyfi eru seld í gegnum heimasíðuna með
því að senda inn fyrispurn eða í Hálsakoti söluskála við Hraunfossa, þar er opið frá 10 til 6 á
daginn.
Ekki eru seldir hálfir dagar. þ.e.a.s veiðileyfi skiptist ekki milli daga. Hvert leyfi er bundið dagsetningu. t,d leyfi 20 júni gildir ekki þann 21 júní, jafnvel ekki þó aðeins hafi verið veitt hálfan daginn þann 20.







