Arnarvatnsheiši

Nú styttist í opnun Nú er ekki langt í að opnað verði fyri veiði á heiðinni, veðráttan þetta vorið er með eindæmum góð og því er varla nokkur vafi á því

Fréttir

Veišimašur viš Ślfsvatn
Veišimašur viš Ślfsvatn

Nú er ekki langt í að opnað verði fyri veiði á heiðinni, veðráttan þetta vorið er með eindæmum góð og því er varla nokkur vafi á því að veiðimenn geta hafið veiðar á heiðinni þann 15 júní.

Það hefur verið óvenju þurrt síðustu misserin og því göngum við út frá því að opna fyrir veiði þetta árið þann 15 júní næst komandi. Húsin eru mikið bókuð í byrjun tímabilsins en það er ekki neitt sem mælir geng því að tjalda, eða fara með upphækkuð fellihýsi og tjaldvagna á heiðina. Það eru eingin sér útbúin tjaldstæði á heiðinni en víða má finna vallendi og slétta bakka þar sem gott er að tjalda. Við viljum samt benda fólki á að aka ekki utan slóða þvi gróðurinn er viðkvæmur og jarðvegurinn getur verið blautur. Við Úlfsvatn þar sem veiðihúsin standa, er sér salernishús og  geta tjaldbúar deilt þeirri aðstöðu með þeim sem hafa leigt húsin.
Það er mikið spurt um húsin síðssumars og því væri sterkur leikur að hafa samband sem fyrst hafi menn hugsað sér að fá veiðihús í júlí eða ágúst.
Nýja húsið við Arnarvatn litla verður tilbúið í byrjun júlí og þegar hefur það verið bókað töluvert í  og byrjun júlí.
Við viljum benda þeim veiðimönnum sem vilja leigja hús að klikka á veiðihúsin hérna á síðunni og þar eru dagatöl þar sem sést hvort húsin eru bókuð eða ekki.  Þegar menn hafa pantað húsin er merkt við það í dagatali, en hafi þeir ekki borgað innan tilskilinna tímamarka þá er bókunin feld úr gildi og dagatölin uppfærð. Þannig að ef þeir dagar sem þið höfðu í huga eru þegar bókaðir er um að gera að hafa samband og athuga hvort bókunin sé staðfest eða ekki.


Vonumst til að sjá marga veiðimenn með bros á vör á heiðinni í sumar.

 



Engar umręšur fundust fyrir žessa frétt.

Skrifa athugasemd





captcha

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf