Arnarvatnsheiši

Veiðin fer vel af stað Veiðin fer vel af stað þetta árið og hafa þeir veiðimenn sem við höfum heyrt í verið mjög ánægðir. Fiskurinn er feitur og fallegur

Veišin fer vel af staš

Nęstum tilbśnir į grilliš
Nęstum tilbśnir į grilliš

Veiðin fer vel af stað þetta árið og hafa þeir veiðimenn sem við höfum heyrt í verið mjög ánægðir. Fiskurinn er feitur og fallegur eftir veturinn en líka mýflugurnar, þær eru víst helst til margar þessa dagana og viljum við því benda veiðimönnum að hafa með sér flugnanetið. Yfirleitt koma tvær til  þrjár göngur af þessum fylgi fiskum heiðarinnar yfir sumarið og má búast við að eftir 1 til 2 vikur verðið þessi gangan í rénum.  Magnús Magnússon ritstjóri á Skessuhorninu var á heiðinni núna í opnun tímabilsins og hér að neðan er grein sem hann skrifaði í blaðið. Við fengum leyfi hjá honum til að birta hana hérna á heimasíðunni. 

Arnarvatnsheiðin kemur vel undan vetri og eru vegir um hana orðnir þurrir og greiðfærir. Blaðamaður leit við um liðna helgi hjá forsvarsmönnum Veiðifélags Arnarvatnsheiðar sem þá voru að gera veiðihúsin klár fyrir opnun á morgun, 15. júní. Þó svo að formlega hafi veiðitímabilið ekki hafist fyrr en í gær, fékk blaðamaður ásamt tveimur öðrum að renna fyrir fisk á laugardaginn. Fyrir valinu varð Úlfsvatn. Siglt var um það á litlum báti síðari hluta dags og mest spúndregið. Fiskurinn lét sannarlega ekki á sér standa og víðast hvar um vatnið var mikið líf. Veðrið var þokkalegt, suðaustan gola eða kaldi á köflum, skýjað og smávæta á köflum. Ágætt veiðiveður. Eftir sex tíma veiði voru 30 silungar komnir á krókinn, flestir eitt til eitt og hálft pund en nokkrir 3,5. Lofar sannarlega góðu fyrir sumarið.
 
 
Á vettvangi veiðifélagsins er nú verið að leggja lokahönd á smíði nýs veiðihúss við Arnarvatn litla og verður það tekið í notkun í byrjun júlí. Bætist það við veiðihúsin tvö sem standa við Úlfsvatns. Batnandi nýting er á húsunum, að sögn Guðmundar Kristinssonar formanns veiðifélagsins, og eru þau mikið bókuð í byrjun tímabilsins. En þótt vel sé bókað í veiðihúsin er sjálfsagt að benda veiðimönnum á að víða er hægt að tjalda og þangað er hægt að komast með vel búin fellihýsi (á stórum hjólum). Þá er færð orðin svo góð um heiðina að auðvelt er að fara þangað í dagsferðir, því innan við klukkutíma tekur að aka frá Húsafelli í þau vötn sem næst liggja, svo sem Úlfsvatn, Stóra lón og Arnarvatn litla.
 
Vegurinn um heiðina hefur mikið verið bættur á síðustu árum. Raunar er eini farartálminn sem krefst þess að fólk sé á jeppum, vöðin á Norðlingafljóti; Úlfsvatnsvaðið og Helluvað. Búið er að slétta og bera í marga vegaslóða og eru þeir ágætlega greiðfærir. Til marks um vegabæturnar sl. 30 ár má benda á að ferð sem tók 5-6 klukkustundir þá, tekur innan við klukkustund í dag.
Allar nánari upplýsingar um veiðina á Arnarvatnsheiði, útleigu og pantanir húsa, sölu veiðileyfa og aðrar gagnlegar upplýsingar má finna á vefnum http://www.arnarvatnsheiði.is/ Einnig eru veiðileyfi seld í Hálsakoti, versluninni við Hraunfossa.


Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf