Arnarvatnsheiði

Arnarvatnsheiði í Flugufréttum  Í veftímaritinu Flugufréttum föstudaginn 22. janúar er birt ítarlegt viðtal við Kristrúnu Snorradóttur um

Arnarvatnsheiði í Flugufréttum

Vegvísir
Vegvísir

 Í veftímaritinu Flugufréttum föstudaginn 22. janúar er birt ítarlegt viðtal við Kristrúnu Snorradóttur um Arnarvatnsheiðina, stöðu mála þar, bestu vötnin og horfur til framtíðar.

Farið er vítt og breitt í viðtalinu og þar segir Kristrún meðal annars: „Þótt sagt sé að vötnin á Arnarvatnsheiði séu óteljandi þá er það nú þannig að Úlfsvatn og Arnarvatn litla eru þau vötn sem langflestir stunda. Mjög góð veiði var í Úlfsvatni síðasta sumar og svipaða sögu er að segja af Arnarvatni litla. Það eru ekki margir sem leggja það á bílana sína að fara í vötn eins og Hlíðarvatn og önnur sem erfitt er að komast að, en þau eru ekki síðri veiðivötn. Síðustu tvö ár hafa verið óvenju þurr og víða á heiðinni hefur vatnsbúskapurinn verið bágur. Yfirborðsstaðan í sumum vötnum hefur verið mjög lág og vötn eins og Krummavatn og Veiðitjörn, þar sem er stór og falleg bleikja í bland við urriða, hafa verið eins og hrísgrjónaakur yfir að líta þegar líða tekur á sumarið. Fiskurinn í þessum vötnum þykir afar góður matfiskur en hefur líklega verið hálfur ofan í moldarbotninum þessi þurrkasumur og kryddast af því.

Birt með leyfi Flugufrétta / http://www.flugur.is/.



Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf