Arnarvatnsheiði

Veiðin fer vel af stað Nú styttist í opnun Arnarvatnsheiði í Flugufréttum Veiðifélagið semur við Borgarbyggð Þriðja veiðihúsið komið á heiðina.

Fréttir

Veiðin fer vel af stað

Næstum tilbúnir á grillið

Veiðin fer vel af stað þetta árið og hafa þeir veiðimenn sem við höfum heyrt í verið mjög ánægðir. Fiskurinn er feitur og fallegur eftir veturinn en líka mýflugurnar, þær eru víst helst til margar þessa dagana og viljum við því benda veiðimönnum að hafa með sér flugnanetið. Yfirleitt koma tvær til  þrjár göngur af þessum fylgi fiskum heiðarinnar yfir sumarið og má búast við að eftir 1 til 2 vikur verðið þessi gangan í rénum.  Magnús Magnússon ritstjóri á Skessuhorninu var á heiðinni núna í opnun tímabilsins og hér að neðan er grein sem hann skrifaði í blaðið. Við fengum leyfi hjá honum til að birta hana hérna á heimasíðunni. 

Lesa meira

Nú styttist í opnun

Veiðimaður við Úlfsvatn

Nú er ekki langt í að opnað verði fyri veiði á heiðinni, veðráttan þetta vorið er með eindæmum góð og því er varla nokkur vafi á því að veiðimenn geta hafið veiðar á heiðinni þann 15 júní.

Lesa meira

Arnarvatnsheiði í Flugufréttum

Vegvísir

 Í veftímaritinu Flugufréttum föstudaginn 22. janúar er birt ítarlegt viðtal við Kristrúnu Snorradóttur um Arnarvatnsheiðina, stöðu mála þar, bestu vötnin og horfur til framtíðar.

Lesa meira

Veiðifélagið semur við Borgarbyggð

Guðmundur Kristinnson formaður veiðifélagsins og Páll sveitastjóri við undirritun leigusamningsins.

Þann 1 des var undirritaður samningur milli Borgarbyggðar og Veiðifélags Arnarvatnsheiðar um leigu á skálunum við Úlfsvatn og Álftakrók.
 

Lesa meira

Þriðja veiðihúsið komið á heiðina.

Nýja húsið að fara að leggja af stað upp á heiði.

Þótt kreppan hafi skollið á okkur öllum erum við í veiðifélaginu staðráðin í að auka þjónustu við veiðimenn á Arnarvatnsheiði og því var ákveðið að smíða annað 8 manna hús og koma því upp á heiði núna í haust.

Lesa meira

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf